Skilmálar

Almenn ákvæði

Eftirfarandi
skilmálar gilda fyrir Ögn verslun (Mömmuknús ehf.), kt: 570123-0920, VSK númer:
xxxxxx varðandi öll viðskipti á vefsíðunni www.ogn.is.
Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur fyrir Ögn verslun (Mömmuknús ehf.).
annars vegar og kaupanda vöru hins vegar. 

Upplýsingar og
verð

Ögn verslun
áskilur sér rétt til að afturkalla pantanir og endurgreiða viðskiptavini vegna
rangra verðupplýsinga eða ef vara reynist uppseld. Sé vara ekki til á lager
verður haft samband við kaupanda. Seljandi áskilur sér rétt til að breyta verði
á vöru án fyrirvara þar til pöntun hefur verið gerð t.d. vegna gengisbreytinga
ásamt verðbreytingum hjá birgjum.

Öll verð á
vefsíðu okkar www.ogn.is  er með 24% virðisaukaskatti. Pantanir með heimsendingu eru sendar
heim að dyrum með Íslandspósti. Einnig er hægt að velja um að sækja samkvæmt
samkomulagi og hægt er að fá nánari upplýsingar í tölvupósti eða
samfélagsmiðlum okkar.

Greitt á
netinu

Hægt er að
greiða fyrir vörur í vefverslun okkar með eftirfarandi hætti:

Millifærsla: Þegar gengið er frá pöntun er hægt að velja það að
millifæra. Millifærslan skal berast innan við 24 tíma frá pöntun.
Reikningsnúmer er 0370-26-570107 og kt. 570123-0920.

Greiðslukort: Með VISA eða MASTERCARD greiðslukortum í gegnum örugga
greiðslusíðu SaltPay. Tekið er við kreditkortum og debetkortum. Einnig er hægt
að greiða með Apple Pay.

Afhending vöru

Allar pantanir
eru afgreiddar samdægurs eða næsta virka dag eftir pöntun. Kaupandi fær
skilaboð í tölvupósti þegar varan er afgreidd frá okkar lager.

Öllum pöntunum
er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar
Íslandsspósts um afhendingu vörunnar.

Ögn verslun
ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á
vöru í flutningi. Ef vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún
er send frá okkur til kaupanda er tjónið á ábyrgð Íslandspósts en á ábyrgð
kaupanda að fylgja því eftir að fá það bætt. Kaupandi ber ábyrgð á að ganga úr
skugga um að gefa upp rétt heimilisfang við pöntun.

Skilaréttur og
endurgreiðslufrestur

Viðskiptavinir
hafa 14 daga skilafrest að því tilskildu að varan hafi ekkert verið notuð og að
henni sé skilað í fullkomnu standi.

Kvittun fyrir
vörukaupum þarf að fylgja með vöruskilum. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu
ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin til okkar.
Athugið að skila-/skiptiréttur gildir ekki um vöru sem keypt er á útsölu.

Flutnings- og
póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Ósóttar
pantanir

Hafi vara ekki
verið sótt innan 3 mánaða eftir að hún er tilbúin til afhendingar fer hún aftur
í sölu. Ögn verslun áskilur sér rétt á að endurgreiða ekki ósóttar pantanir.

Gölluð vara



Reynist vara gölluð eða kaupandi er á einhvern hátt
óánægður með kaupin hvetjum við kaupanda til að hafa samband svo við getum
leyst málið í sameiningu. Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í
staðinn og greiðum við meðfylgjandi sendingarkostnað sem um ræðir eða
endurgreiðum vöruna sé þess óskað. Við viljum að viðskiptavinir okkar séu
ánægðir með kaupin og þjónustuna sem við veitum. Við þiggjum ábendingar á
netfangið ognverslun@gmail.com. Vísað er til laga um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um
neytendakaup hvað þetta varðar.



Persónuupplýsingar

Allar
persónuupplýsingar eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og aðeins nýttar í þeim
tilgangi að klára viðskiptafærslur. Upplýsingar verða ekki undir neinum
kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Privacy
policy All personal information will be strictly confidential and will not be
given or sold to a third party.

Lög og
varnarþing

Kaup á vörum
og skilmálar vegna þeirra eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans
skal það tekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.

Governing
law / Jurisdiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic
law.